Undir byggingunum er einn stærsti bílakjallari landsins með um 1160 bílastæðum. Aðkoma að honum er frá Hörpu, Pósthússtræti og Austurbakka Reykjavíkurhafnar. Í gegnum bílakjallarann er innangengt á milli allra húsa á lóðinni. Í bílakjallaranum, sem verður opinn allan sólarhringinn alla daga ársins, verður sólarhringsvöktun og öryggisgæsla. Mikið verður lagt upp úr frágangi hvað varðar lýsingu, merkingar og að auki verður fullkomið leiðsagnarkerfi til að auðvelda að finna stæði eða fá leiðbeiningar um hvar bílar eru staðsettir og hvernig eigi að komast að og frá þeim stað sem eigandi bíls er staddur í byggingunum.

NÁNAR / GJALDSKRÁ

SKRIFSTOFUR ÍBÚÐARHÚS G1 G2 T1 T2 T3 T4 L1 G1 GEIRSGATA 2 6 ÍBÚÐIR ÓSELDAR 2-5 HERBERGJA STÆRÐIR 81-232 m2

Hafa samband

Allar fyrirspurnir varðandi þjónustu Hafnartorgs og bílakjallara berist á netfangið: 115@115.is
Netfang vegna áskrifta: parking@hafnartorg.is